Þriðja sunnudag í aðventu kemur Stoppleikhópurinn í heimsókn og sýnir jólaleikritið Sigga og skessan í fjallinu. Leikritið byggir á fyrstu bókinni í bókaflokki Herdísar Egilsdóttur um Siggu og vinkonu hennar í fjallinu.
Kjartan Jónsson stjórnar jólastundinni. Áður en leikritið hefst verður kveikt á þriðja kerti aðventukransins.
Auk þess verða sungin nokkur jólalög undir stjórn Helgu Þórdísar Guðmundsdóttur.
Verið öll hjartanlega velkomin.
