Guðsþjónusta með léttu sniði þar sem aðventa og jól verða í forgrunni og jólasaga verður lesin. Kór kirkjunnar syngur undir stjórn Helgu Þórdísar Guðmundsdóttur. Prestur er sr. Kjartan Jónsson.
Sunnudagaskólinn verður með sína dagskrá í safnaðarheimili á sama tíma undir stjórn Hólmfríðar S. Jónsdóttur.
Hressing á eftir og gott samfélag.
