Á síðasta ári tóku börnin í Sunnudagaskóla Ástjarnarkirkju þátt í verkefninu “Jól í skókassa”. Með hjálp kirkjukórs, sóknarnefndar og fleiri velunnara tókst sunnudagaskólanum að fylla 40 skókassa og senda munaðarlausum börnum í Úkraínu.


Það var samtakamátturinn sem gerði verkefnið stórkostlegt. Sumir prjónuðu, aðrir gáfu leikföng, skóladót, sælgæti, föt og peninga. Verslanir gáfu okkur ýmsar hreinlætisvörur svo sem tannbursta, tannkrem og sápur. Bankastofnanir gáfu húfur og aðrar auglýsingavörur. Allt kom þetta að notum. Því að í skókassana á að fara fjölbreyttur varningur sjá nánar á: http://skokassar.net/skokassar-low.pdf
Í ár viljum við gera skókassaverkefnið að samstarfsverkefni allra sem að tengjast Ástjarnarkirkju. Vinsamlega íhugið því eftirfarandi:
- Áttu eða geturðu útvegað ný eða vel með farin barnaföt ?
- Liggja notuð, vel með farin leikföng inni í geymslu eða uppi á háalofti?
- Leynist einhvers staðar nýtilegt skóladót svo sem góðar reglustikur, lítið notaðir blýantar og/eða auðar stílabækur ?
- Ertu dugleg(ur) að prjóna eða þekkir einhvern sem að er iðinn við prjónana og til í að framleiða sokka, húfur, vettlinga og/eða trefla fyrir gott málefni?
- Vinnur þú eða einhver sem þú þekkir í verslun sem að er tilbúin að láta eitthvað af hendi rakna?
- Vinnur þú hjá eða þekkir til í fyrirtæki sem að notar auglýsingavörur í þeim flokkum sem við erum að leita að, hugsanlega afgangs vörur með úreltum merkjum og lógóum?
- Fórstu aðeins fram úr þér síðast þegar þú varst í fríhöfninni og átt umframbirgðir af tyggjói og sleikjó sem að þú og fjölskyldan hefur ekki gott af að klára?
Hafir þú svarað einhverri spurningu játandi þá geturðu orðið að liði !!
Við munum halda sérstakan skókassadag í kirkjunni síðustu helgina í október, þar sem tekið verður á móti varningi og byrjað að búa skókassa til sendingar.
Vinsamlega beinið spurningum um verkefnið á netfangið holmfridursj@yahoo.com, einnig er hægt að hringja í síma 858 7223 (Hólmfríður).