Framundan

7. febrúar 2012 kl. 10:00 |
12. febrúar 2012 kl. 11:00 | Barnastarf
14. febrúar 2012 kl. 10:00 |
19. febrúar 2012 kl. 11:00 | Barnastarf
21. febrúar 2012 kl. 10:00 |
26. febrúar 2012 kl. 11:00 | Barnastarf

Upplýsingar

Viðtalstími Sóknarprests:

Þriðjudagar kl: 10:00-12:00
Miðvikudagar kl: 10:00-11:30
Fimmtudagar kl: 10:00-12:00

-Eða eftir samkomulagi í síma:
565-0022 eða 863-2220

Neyðarsími presta

Prestar í Hafnarfirði og Garðabæ hafa tekið upp samstarf um vaktsíma utan venjulegs skrifstofutíma.
Vaktsíminn er símanúmer sem hægt er að hringja í vegna aðkallandi málefna sem ekki þola bið.

Vaktsími: 659-7133

Messa og sunnudagaskóli í Ástjarnarkirkju sunnudaginn 9. október kl. 11.00

Sr. Ragnar Gunnarsson verður prestur í guðsþjónustinni.  Kór Ástjarnarkirkju  leiðir sönginn við stjórn og undirleik Helgu Þórdísar.  Fríða og föruneyti  verða á sínum stað með sunnudagaskólann.  Eftir stundirnar er kaffi, djús og ávextir í boði í góðu samfélagi kirkjunnar. 

Allir eru hjartanlega velkomnir. 

Texta dagsins má sjá þá þessari slóð: http://www2.kirkjan.is/truin/kirkjuarid/b/trinitatis-16 

 

Barnakór Ástjarnarkirkju

Æfingar hjá Barnakór Ástjarnarkirkju eru alla fimmtudaga  kl. 14.00 Hægt er að fá skráningarblöð í Ástjarnarkirkju eða undir liðnum tónlist-barnakór hér á heimasíðunni.  Einnig er hægt að fá nánari upplýsingar eða senda skráningu til Helgu kórstjóra á netfangið tonleikur@simnet.is  eða í síma 8683110.

12 spora námskeið

12-spora námskeið hefst 12. september. Lesa meira 12 spora námskeið

Hausthátíð Ástjarnarkirkju 2011

Hausthátíð Ástjarnarkirkju verður haldin sunnudaginn 28. ágúst.  Vetrarstarf Ástjarnarkirkju er að hefjast og vill kirkjan kynna það fjölbreytta starf sem boðið verður upp á í vetur, með fjölskylduhátíð í kirkjunni næstkomandi sunnudag.   Hátíðin hefst með fjölskylduguðsþjónustu kl. 11.  Að henni lokinni verður boðið upp á veitingar, pylsur, kókómjólk, candyflos og fleira góðgæti á planinu fyrir utan kirkjuna auk þess sem hoppikastalarar verða þar fyrir yngri kynslóðina.  Fornbílar koma í heimsókn.  Inni í kirkjunni verður kynning á því starfi sem söfnuðurinn býður upp á í vetur fyrir börn og fullorðna.  Hafnfirðingar eru hvattir til að fjölmenna.

 

Ertu í hljómsveit? Ertu að læra á hljóðfæri…. Eða bara að leika þér að spila?

 Það er frábært að fá  jákvætt tónlistarfólk með okkur í kirkjuna,  ýmist til að spila með kórunum  eða til að kynna eða fá kynningu og flytja tónlist í athöfnum.  Ekki hika við að hafa samband við Helgu Þórdísi tónlistarstjóra ef þið viljið koma og vera með í að móta kirkjuna okkar og glæða hana enn meira lífi.

Barnakór Ástjarnarkirkju

Barnakór Ástjarnarkirkju æfir á fimmtudögum kl. 14.00  og hefjast æfingar þann 15. September.  Kórinn eru hugsaður fyrir krakka frá 8 til 13 ára (3-7. bekk) .   Skráningarblöð er hægt að fá í Ástjarnarkirkju og einnig er hægt að skrá barnið rafrænt HÉR á heimasíðu kirkjunnar.

Kór Ástjarnarkirkju

Kór Ástjarnarkirkju getur bætt við sig söngfuglum.  Efnisval kórsins er mjög fjölbreytt og syngur kórinn við hinar ýmsu athafnir Ástjarnarkirkju, bæði hefðbundnar guðsþjónustur, gospelmessur, poppmessur, jól  og margt fleira.  Syngdu með í hollum félagsskap í hverfinu þínu!  Nánari upplýsingar veitir Helga Þórdís í síma 8683110 og á tonleikur(hjá)simnet.is

Nóg að gera á Kirkjugrallaranámskeiði

Það er aldeilis búið að vera nóg um að vera hjá okkur á kirkjugrallaranámskeiðinu og við erum alveg rosalega ánægðar með mætinguna og auðvitað hvað þetta eru frábær og mikil fyrirmyndarbörn sem eru að koma til okkar.

Í dag fengum við leynigest í heimsókn til okkar á leikjanámskeiðið. Börnin hafa verið mjög spennt fyrir leynigestinum og ýmsar skemmtilegar hugmyndir hafa kviknað um það hver þetta gæti nú eiginlega verið. Justin Bieber var þar ofarlega á blaði, Páll Óskar og Glanni Glæpur  og ekki má gleyma Fíu Sól, trúðunum, töframönnunum og öllum hinum sem börnin óskuðu sér að væru að koma.

En Leynigesturinn okkar í dag var engin önnur en  Freyja Haraldsdóttir. Hún kom og spjallaði við krakkana, sýndi þeim myndir og sagði þeim frá því hvernig það er að vera fötluð og ræddi t.d. um að það er allt í lagi að vera öðruvísi, um fordóma og fleira uppbyggilegt.  Börnin fengu svo góðan tíma til að spjalla við Freyju um heima og geima og höfðu gaman af.

dfdfddddddfdfd

 

Fréttir af kirkjugrallaranámskeiði

Eins og í gær hófum við daginn á helgistund í kirkjunni. Kveiktum á kertum, sungum og hlustuðum á sögu. Sagan í dag fjallaði um það hvernig við getum sýnt kærleika með því að vilja þeim vel eða vera góðviljuð.

Eftir góða stund skelltum við nestispokanum á bakið og í göngutúr. Við löbbuðum í átt að Ástjörn, fundum góðan stað og borðuðum nesti og týndum bláber og krækiber áður en við héldum í hann til baka. Þegar heim var komið eftir góðan eins og hálfs tíma göngutúr hlustuðum við aftur á sögu og tókum því rólega.

dddfffffffffffffd

 

jjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjfffffffddj

 

ffffffffff         fffff

 

Kirkjugrallarar

Í dag hófst tveggja vikna kirkjugrallaranámskeið í Ástjarnarkirkju.

Við byrjuðum daginn á helgistund, kveiktum á kertum, sungum og hlustuðum á sögu um það hvernig við getum sýnt  kærleika með því að vera þolinmóð við hvert annað.

Sólin skein skært í dag og við nutum þess að vera úti í leikjum og föndri. Við fórum í blöðrueltingaleik, stórfiskaleik, og aðra skemmtilega útileiki. Spiluðum twister með miklum tilþrifum og máluðum bænasteina sem við ætlum svo að nota á leikjanámskeiðinu.

 

Hér koma nokkrar myndir frá deginum.

herasdsf sdfsfsfs


fgff
dfdfdfdfdfdfdfdfdfdfdfdfdfdfdfdfdfdfdfdfdfdfdfstórfiskaleik

 

 

 

Síða 3 af 512345