Upplýsingar Viðtalstími Sóknarprests:
Þriðjudagar kl: 10:00-12:00
Miðvikudagar kl: 10:00-11:30
Fimmtudagar kl: 10:00-12:00
-Eða eftir samkomulagi í síma:
565-0022 eða 863-2220
Neyðarsími presta Prestar í Hafnarfirði og Garðabæ hafa tekið upp samstarf um vaktsíma utan venjulegs skrifstofutíma.
Vaktsíminn er símanúmer sem hægt er að hringja í vegna aðkallandi málefna sem ekki þola bið.
Vaktsími: 659-7133
|
Sunnudaginn 21. ágúst nk. kl: 11:00 er fyrsta Guðsþjónusta í Ástjarnarkirkju eftir sumarfrí og er hún tileinkuð fermingarbörnum næsta árs. Stefanía Ingólfsdóttir og Jón Gunnar Ingólfsson heimsækja okkur og spila á gítar og syngja.
Séra Kjartan Jónsson leiðir stundina og Helga Þórdís Guðmundsdóttir tónlistarstjóri leiðir safnaðarsöng.
Allir hjartanlega velkomnir.
Kirkjugrallaranámskeiðið er haldið vikurnar 8.-12. Ágúst og 15.-19. Ágúst. Námskeiðið er frá 09:00-12:00 en boðið er upp á gæslu frá 08:00-09:00 og 12:00-13.00.
Námskeiðið er ætlað börnum á aldrinum 6-9 ára, (fædd 2002-2004). Dagskráin verður fjölbreytt, og gefst börnunum kostur á að kynnast kirkjunni sinni og boðskap hennar í leik og starfi. Auk þess förum við í stuttar gönguferðir um nágrennið, hjóla- og sundferðir, föndrum og margt fleira.
Skráningá námskeiðið er bæði rafræn hér á síðunni:
SKRÁNING Á KIRKJUGRALLARANÁMSKEIÐ
en einnig er hægt að koma við í Ástjarnarkirkju og fylla út skráningarblað á námskeiðið.
Fyrir nánari upplýsingar er hægt að hafa samband við Heiðu Björk á netfangið: heida@astjarnarkirkja.is.

Hausthátíðin hefst með fjölskylduguðsþjónustu kl. 11.
Strax að henni lokinni verður boðið upp á ýmis konar uppákomur, hoppikastala, ýmislegt góðgæti bæði af grilli og nágrenni þess. Áætlað er að hátíðinni ljúki um kl. 14. Auk skemmtiatriða og fjölbreyttrar dagskrár verður starf kirkjunnar kynnt. Nánari upplýsingar um hátíðina þegar nær dregur í ágúst.
Námskeiðið verður á mánudagskvöldum og er ókeypis. Það verður opið fyrstu
fjögur skiptin sem eru eins konar kynningarkvöld en eftir það verður því lokað. Hægt er að kynna sér námskeiðið án allra skuldbindinga.
Á Alfa-námskeiðinu er fjallað um helstu atriði kristinnar trúar. Það stendur
í 10 vikur auk þess sem farið verður í sólarhringsferð út úr bænum. Hver
samvera hefst með kvöldverði kl. 18:00 og lýkur kl. 21:00. Kostnaður við
námskeiðið er 7.000 kr. sem er greiðsla fyrir mat og námsgögn. Greiða þarf
sérstaklega fyrir helgarferðina.
Lesa meira Alfa námskeið hefst 15. september
Á annan í Hvítasunnu, mánudagskvöldið 13. júní kl. 20:00 mun Kór Ástjarnarkirkju heimsækja Digraneskirkju og syngja U2 lög undir stjórn Helgu Þórdísar, við hina árlegu mótorhjólamessu kirkjunnar. ”Hljómsveit Sigga Kapteins” sér um undirleik og sr. Gunnar Sigurjónsson sóknarprestur í Digraneskirkju leiðir stundina.
Á fundi sóknarnefndar í maí sl. voru drög lögð að því að móta stefnu Ástjarnarsafnaðar til framtíðar og hefur Gylfi Dalmann dósent í verkefnastjórnun við Háskóla Íslands tekið að sér að stýra verkinu. Sóknarnefndin hefur tekið frá vinnudag í byrjun september til að vinna að verkefninu. Á síðari stigum er ætlunin að efna til eins konar þjóðfundar með safnaðarfólki þar sem þátttakendum gefst kostur á að koma með hugmyndir og taka þátt í stefnumótunarvinnunni. Þeir sem vilja koma hugmyndum á framfæri hafi samband við starfandi sóknarprest og einnig þeir sem eru áhugasamir um þátttöku í “þjóðfundinum”.
Kirkjan þarfnast margra fúsra handa s. s. tónlistarfólks til að stofna hljómsveit/ir, söngfólks fyrir kórinn, messuhópa til að undirbúa guðsþjónustur (m.a. prédikunina) og þjóna í þeim, aðstoðarfólk í unglingastarfi, þátttakendur í kærleikshópi kirkjunnar o. m. fl.
Ef þú hefur áhuga á að móta stefnu safnaðarins eða að einhverjum hætti koma að starfi hans hafðu þá samband við sr. Kjartan Jónsson settan sóknarprest í síma:565-0022 eða 863-2220 eða á netfangið kjartan@astjarnarkirkja.is
Við viljum minna á að nú stendur yfir skráning fermingarbarna fyrir veturinn 2011-2012 í Ástjarnarkirkju. Hægt er að nálgast skráninguna hér á heimasíðu kirkjunnar undir þessum hlekk:
Skráning fermingarbarna
Einnig er hægt að fylla út skráningarblað sem hefur vonandi borist öllum börnum á fermingaraldri í pósti og koma því til Séra Kjartans Jónssonar, sóknarprests eða fá afhent skráningarblað í Ástjarnarkirkju til útfyllingar.
Yfirburðir elskunnar
Flutt 22. maí 2011 í Ástjarnarkirkju
„Þetta er mitt boðorð, að þér elskið hvert annað eins og ég hef elskað yður. Enginn á meiri kærleik en þann að leggja líf sitt í sölurnar fyrir vini sína. Þér eruð vinir mínir ef þér gerið það sem ég býð yður. Ég kalla yður ekki framar þjóna því þjónninn veit ekki hvað húsbóndi hans gerir. En ég kalla yður vini því ég hef kunngjört yður allt sem ég heyrði af föður mínum. Þér hafið ekki útvalið mig heldur hef ég útvalið yður. Ég hef ákvarðað yður til að fara og bera ávöxt, ávöxt sem varir svo að faðirinn veiti yður sérhvað það sem þér biðjið hann um í mínu nafni. Þetta býð ég yður, að þér elskið hvert annað.“Jóh 15.12-17
Þetta er kærleikurinn fullyrðir Jóhannes guðspjallamaður:
„Ekki að við elskuðum Guð heldur að hann elskaði okkur og sendi son sinn til að vera friðþæging fyrir syndir okkar.“ 1. Jóh. 4.10
Það er þannig að Guð kemur alltaf fyrst til okkar með elsku sína. Og ef við áttum okkur á því gerist þetta sem Sigurbjörn Einarsson setur svo fallega í orð í sálminum (sálmab. 711) sem við sungum áðan.
Kristur, í náð þinni komstu til mín,
kveiktir það ljós, er mig vakti til þín,
orðið þitt varð mér að lifandi lind,
ljómaði við mér þín heilaga mynd. Lesa meira Prédikun Sr. Báru Friðriksdóttur í kveðjumessu Sunnudaginn 22. maí
Sunnudaginn 29. maí nk. verður haldin messa sérstaklega tileinkuð fermingarbörnum næsta árs og foreldrum þeirra. Sr. Kjartan Jónsson sóknarprestur leiðir stundina og kór Ástjarnarkirkju syngur undir stjórn Helgu Þórdísar Guðmundsdóttur tónlistarstjóra.
Fermingarbörn og foreldrar þeirra eru eindregið hvött til að mæta.
|