Framundan

7. febrúar 2012 kl. 10:00 |
12. febrúar 2012 kl. 11:00 | Barnastarf
14. febrúar 2012 kl. 10:00 |
19. febrúar 2012 kl. 11:00 | Barnastarf
21. febrúar 2012 kl. 10:00 |
26. febrúar 2012 kl. 11:00 | Barnastarf

Upplýsingar

Viðtalstími Sóknarprests:

Þriðjudagar kl: 10:00-12:00
Miðvikudagar kl: 10:00-11:30
Fimmtudagar kl: 10:00-12:00

-Eða eftir samkomulagi í síma:
565-0022 eða 863-2220

Neyðarsími presta

Prestar í Hafnarfirði og Garðabæ hafa tekið upp samstarf um vaktsíma utan venjulegs skrifstofutíma.
Vaktsíminn er símanúmer sem hægt er að hringja í vegna aðkallandi málefna sem ekki þola bið.

Vaktsími: 659-7133

Kveðjumessa séra Báru Friðriksdóttur Sunnudaginn 22. maí

Séra Bára Friðriksdóttir leiðir stundina í kveðjumessu sinni Sunnudaginn 22. maí næstkomandi kl: 11:00.

Helga Þórdís Guðmundsdóttir tónlistarstjóri og Gréta Salóme Stefánsdóttir fiðluleikari leika undir söng kórs Ástjarnarkirkju. Kaffi og með því og samfélag að stundinni lokinni.
Allir hjartanlega velkomnir.

Guðsþjónusta sunnudaginn 15. maí

Sunnudaginn 15. maí verður Guðsþjónusta kl: 11:00 í Ástjarnarkirkju. . Sr. Jakob Á. Hjálmarsson leiðir stundina og Helga Þórdís Guðmundsdóttir leikur undir safnaðarsöng og Stúlkur úr æskulýðsstarfi Ástjarnakirkju syngja duet og leika undir á píanó.  Heitt á könnunni og samfélag að lokinni athöfn.

Allir hjartanlega velkomnir.

Fermingarfræðsla 2011-2012

Skráning í fermingarfræðslu fyrir árið 2011-2012 er hafin.  Þið getið fengið nánari upplýsingar um tilhögun fræðslunar á þessari síðu.
Einnig er hægt að skrá fermingarbarnið í fræðsluna á síðunni okkar og má finna skráningarblaðið hérna.

Einnig er hægt að hafa samband í síma kirkjunnar: 565-0022 eða sent tölvupóst á sóknarprest á: kjartan.jonsson@kirkjan.is.

Fjölskylduguðsþjónusta og uppskeruhátíð sunnudagaskólans

Starf sunnudagaskóla Ástjarnarkirkju hefur verið  blómlegt í vetur og vilja  starfsmenn skólans þakka öllum þeim góðu gestum sem lagt hafa leið sína til okkar. Skólanum verður slitið í fjölskylduguðsþjónustu 8. maí. Sr. Ragnar Gunnarsson leiðir stundina ásamt sunnudagaskólakennurum og Helga Þórdís Guðmundsdóttir spilar undir safnaðarsöng.

Til að gleðjast yfir góðum vetri og fagna sumrinu heldur sunnudagskólinn uppskeru- og vorhátíð á eftir guðsþjónustunni. Þá verður mikið um dýrðir og munu gestir geta sveiflað sér í hoppukastala, fengið nýtt útlit með andlitsmálningu, gætt sér á gómsætum grilluðum pulsum og leikið lausum hala á lóð kirkjunnuar. Öll sóknarbörn hjartanlega velkomin, líka þau sem ekki hafa kynnst starfi sunnudagaskólans enn þá.

við vonumst til að sjá þig því það er aldrei of seint að vera með.

 

Sunnudagur 1.Maí

Guðsþjónusta í Ástjarnarkirkju kl: 11:00
Séra Kjartan Jónsson leiðir stundina. Kór Ástjarnarkirkju syngur undir stjórn Helgu Þórdísar Guðmundsdóttur. Kaffi á eftir í safnaðarsal.

Sunnudagaskóli
Sunudagaskólinn verður á sínum stað kl: 11:oo með Fríðu,Bryndísi, Heiðu og Arndísi Emblu.  það verður RAUÐUR DAGUR hjá okkur í sunnudagaskólanum svo það mega allir sem vilja mæta í rauðu eða með eitthvað rautt.

Dagskrá kyrruviku og páska

21. Apríl, Skírdagur. Messa kl. 20:00. Tignun krossins.

Sjö orð Krists á krossinum verða lesin og íhuguð. Í lok messu verður allt tekið af altarinu, munir og altarisklæði, og borið úr kirkju. Síðan verða fimm rauðar rósir skildar eftir á altarinu sem tákn um sár Krists.
Kór Ástjarnarkirkju syngur undir stjórn Helgu Þórdísar Guðmundsdóttur. Prestur er sr. Kjartan Jónsson.

24. apríl, Páskadagur. Hátíðarmessa kl. 11:00.

Kór Ástjarnarkirkju syngur undir stjórn Helgu Þórdísar Guðmundsdóttur. Prestur er sr. Kjartan Jónsson. Sunnudagaskóli á sama tíma. Léttur hádegisverður og samfélag á eftir. Sóknarbörn eru hvött til að fjölmenna og efla samfélagið í kirkjunni sinni.

 

Séra Bára Friðriksdóttir sóknarprestur lætur af störfum

Séra Bára Friðriksdóttir sóknarprestur Ástjarnarkirkju hefur óskað eftir lausn frá störfum. Séra Bára hefurþjónað Tjarnaprestakalli, þ.e. Ástjarnar og Kálfatjarnarsóknum síðan í september 2007 og er því ríflega ár eftir af skipunartíma hennar.

Ákvörðun séra Báru var kunngjörð á aðalfundi Ástjarnarsóknar sem haldinn var sunnudaginn 17. apríl. Geir Jónsson formaður sóknarnefndar þakkaði við það tækifæri séra Báru fyrir hennar störf fyrir Ástjarnarsókn og óskaði henni velfarnaðar.

Biskup Íslands, séra Karl Sigurbjörnsson hefur beðið Dr. Kjartan Jónsson héraðsprest Kjalarnesprófastsdæmis að þjóna prestakallinu þar til annað verður ákveðið, en hann hefur þjónað Tjarnaprestakalli með séra Báru undanfarin misseri

 

Föndur í Sunnudagaskólanum

Síðastliðinn Sunnudag var föndurdagur í sunnudagaskólanum. Við hjálpuðumst að við að útbúa þetta flotta vinatré með höndum okkar allra. Þetta fallega listaverk prýðir nú vegg safnaðarsals Ástjarnarkirkju og minnir okkur á í hvert skipti sem við komum í sunnudagaskólann hvað við erum góðir vinir.

vinatre

.

 

Síða 5 af 512345