Alfa-námskeið er lifandi og skemmtilegt námskeið um kristna trú þar sem fjallað er á einfaldan hátt um mikilvægustu atriði kristinnar trúar á mannamáli. Hist er einu sinni í viku í 10 vikur. Tekist er á við grundvallarspurningar lífsins með virkri þátttöku námskeiðsgesta.
Ekki eru gerðar kröfur til þátttakenda um viðhorf eða afstöðu. Upplifun hvers og eins af námskeiðinu er því mjög persónuleg.
Námskeiðið hefur verið haldið í söfnuðum á Íslandi frá 1995 og hafa mörg þúsund manns sótt það sér til gagns og ánægju. Það hefur einnig verið haldin í öllum helstu kirkjudeildum kristninnar í yfir 150 löndum og hafa meira en fimm milljónir manna farið á það.
Hver samvera hefst kl. 18 með léttum kvöldverði, síðan er fræðsla í 45 mínútur og umræður jafn lengi. Samverunum lýkur stundvíslenga kl. 21. Farið verður út úr bænum 21. – 22. október. Námskeiðið kostar 7.000 kr. sem ef greiðsla fyrir matinn. Kennsla og námsgögn eru ókeypis. Greiða verður sérstaklega fyrir helgarferðina en reynt verður að halda kostnaði niðri eins og kostur er.
Fólk er hvatt til að nýta sér þetta frábæra tilboð og eru foreldrar fermingarbarna boðnir sérstaklega velkomnir. Oft myndast mjög gott samfélag á þessum námskeiðum. Námskeiðið verður kynnt 15. september kl. 20. Þá er hægt að skrá sig. Öllum er velkomið að mæta án nokkurra skuldbindinga.
Umsjónarmaður: Kjartan Jónsson, settur sóknarprestur, kjartan.jonsson@kirkjan.is, 565 0022.
Sjá nánar á http://alfa.is/.
