Nokkrar konur í sókninni tóku sig saman eftir að hafa setið námskeiðið Tilgangsríkt líf, 40 daga andlegt ferðalag og stofnuðu kærleikshóp Ástjarnarkirkju vorið 2011.
Kærleikshópurinn er ætlaður öllum sóknarbörnum, stórum sem smáum. Fyrsta verkefni kærleikshóps var að bjóða öllum börnum fæddum 2005, sem eru að ljúka leikskólagöngu sinni, í heimsókn í kirkjuna fyrir páskana í páskaföndur. Verkefninu var tekið vel og fengum við tæplega 60 börn í heimsókn í þrjú skipti.
Ætlunin er að láta meira til sín taka á haustmisseri. Þær konur sem hafa áhuga á að taka þátt í starfi hópsins er bent á að hafa samband við Heiðu, heidaingvars@gmail.com.
