Framundan

26. febrúar 2012 kl. 11:00 | Barnastarf
28. febrúar 2012 kl. 10:00 |
4. mars 2012 kl. 11:00 | Barnastarf
11. mars 2012 kl. 11:00 | Barnastarf
18. mars 2012 kl. 11:00 | Barnastarf
25. mars 2012 kl. 11:00 | Barnastarf

Upplýsingar

Viðtalstími Sóknarprests:

Þriðjudagar kl: 10:00-12:00
Miðvikudagar kl: 10:00-11:30
Fimmtudagar kl: 10:00-12:00

-Eða eftir samkomulagi í síma:
565-0022 eða 863-2220

Neyðarsími presta

Prestar í Hafnarfirði og Garðabæ hafa tekið upp samstarf um vaktsíma utan venjulegs skrifstofutíma.
Vaktsíminn er símanúmer sem hægt er að hringja í vegna aðkallandi málefna sem ekki þola bið.

Vaktsími: 659-7133

Home > Sunnudagaskóli > Starfið

Starfið

 

 Það er sunnudagaskóli kl. 11:00 alla sunnudaga fram á vor. Fyrsti sunnudagaskóli hvers mánaðar fellur inn í fjölskylduguðsþjónustu í kirkjunni. Annars hefst stundin í guðsþjónustu inni í kirkjurýminu en gestir og kennarar sunnudagaskólans flytja sig fljótlega yfir í safnaðarrýmið.

Það er kærleikur Guðs og hin guðdómlega gleði sem að við leggjum áherslu á í starfi sunnudagaskóla Ástjarnarkirkju. Í vetur munum við syngja, segja sögur, biðja bænir og leika brúðuleikrit á hverjum sunnudegi. Hafdís og Klemmi eru líka fastagestir hjá okkur og heyrum við eitthvað frá þeim alla sunnudaga. Auk fastra liða munum við gera okkur dagamun og brjóta starfið upp á ýmsan hátt með því að fá til okkur góða gesti og hafa suma daga með sérstöku sniði, eins og til dæmis prinsa-, prinsessu- og kaffihúsadag.

Við þökkum Guði fyrir gæsku hans og kærleika og felum honum allt starf sunnudagaskólans og bjóðum ykkur öll, börnin stór og smá, velkomin með okkur að gleðjast yfir elsku Guðs til okkar allra. Guð blessi ykkur öll.